Enn ein kindin

Ídag

02.01.2009 13:13:44 / aso1

2009

Sæl öll.

Gleðilegt nýtt ár!

Megi árið færa ykkur gleði og hamingju.


Nýárskveðja
Ásdís


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 17:11:57 / aso1

Snjór í Rochester

Nú snjóar í Rochester. Rochesterbúar tala varla um annað en þennan blessaða snjó. Þeim finnst þetta svakalegt ástand. Bílarnir renna og allt :O

Dæmigerðu samtali í Rochester (í lyftu til dæmis) má, í stuttu máli, lýsa svona:

Rochesterbúi:    Hi, how are you, honey?
Íslensk stúlka:   Fine, thank you
Rochesterbúi:    úúú it´s snowing. Very slippery. Very cold. Freezing. Dont you think?
Íslensk stúlka:    Jeah!
Rochesterbúi :   Where are you from?
Íslensk stúlka:    Iceland
Rochesterbúi:     Cool (þeir segja alltaf "cool" þegar maður nefnir Ísland)
Íslensk stúlka:    Mhm
Rochesterbúi:     Take care and have a nice day
Íslensk stúlka:    Thanks. You too.

Við skulum nú skoða hvernig samtalið kemur út á móðurtungunni:


Rochesterbúi:    Hæ, hvernig hefuru það, elskan?
Íslensk stúlka:   Fínt, takk fyrir.
Rochesterbúi:    úúú það snjóar. Mjög hált. Mjög kalt. Ískalt. Finnst þér það ekki?
Íslensk stúlka:    Jú einmitt
Rochesterbúi :   Hvaðan ertu?
Íslensk stúlka:    Íslandi
Rochesterbúi:     Svalt!
Íslensk stúlka:    Mhm
Rochesterbúi:    Jæja, farðu nú vel með þig og njóttu dagsins, elskan!
Íslensk stúlka:    Takk. Þú líka.


Þeir eru sko klikkaðir hérna í kurteysinni... bara vandræðalegt... við erum að verða brjáluð á þessu... og hér að ofan var ég bara að lýsa samtali í LYFTU!   Allir spyrja "how are you"



Ég gisti hjá Sigurjóni mínum í nótt á St. Marys. Ég ákvað að labba frá hótelinu og á spítalann í gær og mér leið eins og í amerískri bíómynd. Ég var með IPodinn í eyrunum og hlustaði á 100 bestu lög íslenska lýðveldisins á meðan ég gekk um götur Rochester og ímyndaði mér að ég væri stödd í Desperate Housewifes þætti.













Eins og þið sjáið er ROSALEGA mikill snjór hérna ;) samt tókst Erlu að detta vegna hálku :$ hehe... en hún meiddi sig sem betur fer ekkert.


Annars líður okkur ágætlega hérna. Sigurjón er enn í síritanum en hann fær vonandi að koma heim á morgun. Læknarnir hafa séð upptök floganna og þau eru á fleiri en einum stað (sem okkur grunaði svo sem) og það minnkar líkur á að skurðaðgerð beri fullkominn árangur. Hins vegar er mjög margt annað hægt að gera td setja einhverjar elektróður eða eitthvað inn í höfuð hans, gefa honum önnur lyf og margt fleira. Dr. Casino hefur boðað 30 sérfræðinga á fund á morgun hérna á Mayo þar sem farið verður yfir málin hans Sigurjóns. Það hlýtur nú að vera að 30 manna sérfræðingateymi finni lausn fyrir okkur.

Takk fyrir öll kommentin
Knús
Ásdís









» 18 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 15:20:23 / aso1

Í Ameríku er allt "REALLY BIG!"

Jæja

Í gær fluttum við á nýja hótelið. Það er miklu betra. Við fengum íbúð með tveim svefnherbergjum og salernisaðstöðu fyrir hvert herbergi, stofu með sjónvarpi og arin og eldhús.

Í eldhúsinu er risastór ísskápur, risastór eldavél, risastór uppþvottavél :O

Að sjálfsögðu þurftum við að versla eitthvað inn í nýju íbúðina. Við Erla drifum okkur því í Ky-Wee súpermarkaðinn. Ky-Wee er stærsta verslun sem ég hef á ævi minni komið í og við Erla vorum eins og 5 ára krakkar í verslunarleiðangrinum, tókum myndir af öllu sem okkur fannst sniðugt og fyndið, smökkuðum allt sem hægt var að smakka, Thanksgiving eftirrétt, graskersköku, rauðvín og eggnogg....
Allir sem mættu okkur með risastóru innkaupakerruna spurðu "How are you guys doing? ", "Did you find everything you needed?", o.s.frv. og svo auðvitað þetta margumtalaða "HONEY!" .... vandræðalegt hvað fólkið hérna er yndælt ;)

Ég mun bæta inn myndum sem við tókum í verslunarleiðangrinum seinna í dag.

Eftir verslunarleiðangurinn mikla, drifum við Erla okkur heim í íbúð með allar birgðarnar og gengum frá öllum ameríska matnum í ameríska ísskápinn.

Eeeen í verslunarleiðangrinum gerðist svolítið sem okkur fannst alveg sjúklega fyndið. Ég ætla ekki að lýsa því frekar, þið verðið bara að sjá það með eigin augum ;)

Við fórum svo til Sigurjóns og Hafsteins á St. Marys spítalann og horfðum smá á sjónvarpið .... ;)

........nú skuluð þið fara inn á þessa síðu:

http://123.is/sigval83/video/

og horfa á 10-fréttirnar sem Sigurjón setti inn fyrir mig.
ÞIÐ VERÐIÐ AÐ HORFA Á ÞETTA MYNDBAND


» 25 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 19:27:52 / aso1

Drottningarnar tvær og þakkargjörðin

Jæja

Hérna sitjum við, drottningarnar tvær, ég og Sigurjón dragdrottning, á St. Marys hospital. Þar er búið að tengja drottninguna mína við sírita eins og hann fór í á Íslandi.

Okkur líst bara ágætlega á þetta allt saman hérna. Hér eru allir sérstaklega kurteysir....kannski einum of. Allir spyrja hvernig maður hefur það og kalla mig HONEY... Yes honey! No problem honey! Sure honey.....en Sigurjón er yfirleitt kallaður Sir..... Yes sir! Thank you sir!

Nú er búið að tengja Sigurjón við marglitar elektróður. Það fer honum mjög vel. Alveg eins og hann sé með sítt hár ;)
Sigurjón var sérstaklega beðin um að vera í bol eða peysu sem hægt væri að renna/hneppa alveg niður. Þar sem við vorum ekki með neina slíka flík meðferðis nema flíspeysuna hans, gerðum við dauðaleit að slíkri flík og fundum enga. Seint í gærkvöldi fundum við loksins flík við hæfir og keyptum hana. Þetta er svona konu-vesti ;)

Sigurjón er einn á herbergi og það er mjög fínt. Hér er boðið upp á room service og sjúklingarnir hringja bara og panta bara það sem þá langar í af "The menu".... Enginn spítala matur hérna. Við vorum einmitt að enda við að borða hádegismat. Fengum okkur banana og kjúklingasamloku ;) ....

Í gær fórum við Sigurjón út að borða, svona í síðasta skiptið áður en síritinn tók við. Við fórum á Hollenskan stað sem hét Paneokoeken.

Á morgun er hátíðardagur. THANKSGIVING. Við pöntum okkur Thanksgiving-mat af menu-num hérna á St. Marys.


Ég fyrir utan Pannekoeken, Hollenska veitingastaðinn sem við Sigurjón fórum á í gær



Þessi staður var mjög spes og við fengum drykkina okkar í krukkum, ekki glösum.



Ég að drekka úr krukku.  Namm namm!



Yfir
Ásdís

Sigurjón biður vel að heilsa


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.11.2008 22:12:15 / aso1

....vetur, sumar, vor og haust....

Veturinn nálgast og jólin líka. Ætti maður að fara að hengja upp jólaskraut?.... við Sigurjón erum að spá í að gefa hvort öðru bara litlar og einfaldar jólagjafir. Kannski ættum við bara að gefa hvort öðru eitthvað sem við "gerum alveg sjálf" eins og Monica og Chandler í friends. Hvað finnst ykkur?....sokkakanínu kanski ;)


Síðan var ég líka að spá í að fara að baka jólasmákökur...  eða er það kannski of snemmt ;)


Jólakveðja Ásdís

Ps. Tengdó komu í heimsókn áðan og við fórum að skoða myndir úr útskriftarferðinni okkar til Dubai, Singapore og Tælands... og af því tilefni læt ég nokkrar myndir fylgja með úr útskriftarferðinni.



Við keyptum okkur klæðnað í Dubai ;)


Dubai er í miðri eyðimörkinni en þar er samt hægt að fara á skíði.... innanhús.. bara ágætis skíðasvæði



Sigurjón lenti í því í Tælandi að snákur var bókstaflega settur á axlirnar á honum á miðri götu... við tókum náttúrulega mynd af því og síðan rukkaði karlinn sem klíndi snáknum á Sigurjón okkur fyrir... hehehe....



Við fórum á fílsbak í frumskóginum í Tælandi



» 7 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 23:07:05 / aso1

Sumir í þessum heimi vinna við það að stjórna lífi fólks...við erum leikföngin, geymd í leikfangakassa...óhreyfð!

Jæja

Það er erfitt að bíða. Við Sigurjón bíðum og bíðum eftir svari frá Mayo clinic. Þeir eru ekkert að flýta sér. Við kíkjum á póstinn aftur og aftur og fáum engin svör.

Í dag kíkti ég örugglega á hálftíma fresti...eins og það væru eitthvað meiri líkur á svari í dag en í gær. Við erum náttúrulega einhverjum 6 tímum á undan þeim þarna á Mæjónesunni þannig að mestar líkur eru á svari seinnipart dags eða á kvöldin.

Svo þegar ég, í þráhyggju minni, var búin,að kíkja óþægilega oft á póstinn rann það upp fyrir mér að það eru kosningar í Bandaríkjunum í dag. Þá er náttúrulega ekki nokkur maður í Bandaríkjunum að hugsa um einhverja vitleysinga á Íslandi sem stara á pósthólfið og íta í sífellu á "refresh" takkann.

Skrítið að vinna við það að leika sér að lífi fólks. Við erum gleymdu leikföngin í dótakassanum sem söfnum ryki.... við erum bara enn ein mappan í hillunni á Mæjónesspítalanum.

...á meðan við sitjum í hillunni, hreyfingarlaus og rykfallin, er læknirinn kannski bara að bíða í röð eftir að fá að kjósa í Jú Ess and Ei...
En við erum líka að bíða. Ekki eftir að kjósa, heldur eftir að fá lífið okkar aftur eða að minnsta kosti vita hvort það sé hægt að fá það aftur.

Mér er alveg sama hver verður forseti Bandaríkjanna. Bara alveg hundaskítsama..... ég vil bara fá svar!


Jæja nú er ég búin að rasa örlítið út. Ég verð að temja mér þolinmæði... það er bara svo erfitt að vera þolinmóður þegar maður er að bíða eftir einhverju sem skiptir mann öllu máli. Ég veit að þessir læknar þarna úti eru líklega ekki að draga það að svara okkur viljandi. Þeir hafa örugglega nóg að gera í að kukla í öðrum flogaveikum sjúklingum á milli þess sem þeir kjósa valdamesta mann í heimi. Þarna á Mayo eru víst færustu taugalæknar í heimi, og þá viljum við Sigurjón fá. Þannig að við verðum bara að gjöra svo vel að bíða.

Annars eru allir aðrir hlutir í okkar lífi í góðu lagi og allt gott að frétta. Við erum bara alltaf að prjóna og hafa það kósí. Sigurjón er mjög duglegur sem heimavinnandi húsfaðir og það er frábært að koma alltaf heim í hreint, ilmandi hús. Kvöldmaturinn er yfirleitt á borðum og þvotturinn hreinn á snúrunni. Frú Sigurjón stendur sig vel. Ég er bara útivinnandi, Herra Ásdís! Kvenréttindi hvað? Ég spyr allar rauðsokkur þessa lands ?

Kveðja Ásdís Biðdís


PS. Ég vil þakka öllum vinum og ættingjum sem hafa hjálpað okkur í gegn um þetta tímabil...sem fer vonandi að klárast. Við eigum greinilega góða að :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 13:18:34 / aso1

Ég og Sigurjón ... og draumurinn minn :D

Í gær byrjaði ég að blogga og þetta skrifaði ég "Jæja... Nú sit ég hérna á B2 hjá honum Sigurjóni mínum og við erum að horfa á singing bee ;) Við erum bara að reyna að hafa það kósí enda er föstudagur"...ég komst ekki lengra með þetta blogg :$ en ég læt þetta fylgja.

Núna er laugardagur og mig dreyndi hann Sigurjón minn í nótt. Hann var allur útataður í einhverju GULU gummsi. Við mamma og Sigurjón vorum mjög forvitin að vita hvað þetta þýðir og í ljós kemur að mig hefði ekki getað dreymt betur litað gumms til að hafa Sigurjón útataðan í heldur en GULLITAÐ ;) ... í ljós kom nefninlega að um gula litinn gildir m.a.:

"Gulir litir eru einhverjir hagstæðustu litir sem finnast í litaflórunni
hann teingist manneskjunni sjálfri ef hann er hreinn og bjartur
Þá er hann tákn sólarinnar og lífsins
merki um kærleika, góðvild, gáfur djúpa visku innsæi og djúpa trúarkend.
Indiánar töldu gula litinn tákn lífs og óendanleika"

og einnig:

" frelsi, bjartsýni, hugar virkni, einbeiting, opin hugur, sjálfstraust, aðdráttarafl, viska, taugakerfið.
Námsmenn hafa gott af gulum, sérstaklega þegar þeim vantar einbeitingu."

Merkilegt er að Sigurjón er einmitt í augnablikinu bæði námsmaður og segja má að hann eigi í smá vandræðum með taugakerfið ;) ...

ÁFRAM ALLIR... DREYMUM GULT! KLÆÐUM SIGURJÓN Í ....GULT


bestu kveðjur
Ásdís GULA

» 12 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 23:41:26 / aso1

Afmæli!

Ó það er svo gaman að eiga afmæli!

Í dag á ég afmæli... Þetta er búin að vera frábær dagur. Þegar klukkan sló 12 á miðnætti gaf Sigurjón mér afmælisgjöfina mína :) Hún hafði staðið vikum saman uppi á skápnum í stofunni, innpökkuð og girnileg. Sigurjón hafði hins vegar bannað mér að snerta hana og hafði sett nokkrar gildrur þannig að ef ég myndi freistast til að snerta hana myndi komast upp um mig um leið. Ég hafði aldrei freistast enda orðin 24 ára gömul kona! ;)
En á miðnætti í dag, þegar afmælisdagurinn minn rann upp, fékk ég pakkann! Ég fékk iPod nano 8| Ég trúi ekki að hann hafi gefið mér svona flotta gjöf. Takk fyrir mig :D

Síðan fór ég í vinnuna, í hælaskóm, af því maður á að vera fínn á afmælisdaginn. Þannig eru reglurnar. Þar fékk ég góðar kveðjur og ein vinkona mín, hún Dröfn, hafði laumað heimabökuðum muffins, innpökkuðum með gjafaborða, á skrifborðið mitt áður en ég kom. Ekki amalegt að byrja afmælismorguninn á heimabökuðum muffins með morgunkaffinu :D

Síðan sótti ég Sigurjón í skólann og við fórum heim og bökuðum pizzur og buðum mömmu, pabba, Einari og Signýju í heimsókn. Þau gáfu mér æðislega flott úr :d

Síðan ætluðum við bara að hafa það kósí heima, með osta og kertaljós, ef einhverjum skildi detta í hug að kíkja í afmælisheimsókn.

Salvör og Sunneva litla kíktu síðan við. Okkur (mömmu, pabba, Signýju, mér og Sigurjóni) þótti sko ekki leiðinlegt að knúsa Sunnevu litlu, enda er hún algjör mús. Við afhentum henni æðislega krúttleg hekluð föt, sem Gulla amma hans Sigurjóns heklaði handa henni. Ég bara verð að láta eina mynd fylgja af Sunnevu litlu mús í nýju fötunum... Bara krúttlegt !



                                  Sætust!



                                          Það er bara gaman að fá að knúsa svona sæta frænku
                                á afmælisdaginn sinn :) ...ilmurinn ;)


Síðan kíktu Ágústa og Biggi við og gáfu mér króatískt spil.

Núna eru gestirnir farnir og ég sit hér í makindum og skrifa um þennan góða dag, með nýja úrið mitt á höndinni og bíð eftir að Sigurjón komi (af WC) og setji fleiri lög inn á iPodinn minn (á eftir að læra það ;))

Síðan fékk ég fullt af góðum kveðjum á sms formi og einn lítill drengur, Róbert Skúli að nafni, bjallaði í mig og sendi góðar kveðjur til mín. Þegar ég sagði við hann að það væri rosa fallegt af honum að hringja í mig á afmælisdaginn minn sagði hann að það væri ekkert mál, ,,maður ýtir bara á græna og græna" ... hehehe


Ég þakka kærlega fyrir allar góðu kveðjurnar sem bárust mér á sms formi, símtöl, kveðjur á facebook, kveðjur á bloggið mitt og gestir sem komu í eigin persónu. Takk fyrir góðan 24 ára afmælisdag.

Kveðja
Ásdís KONA!


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 17:29:10 / aso1

"Þá er það ákveðið"

Jæja niðurstöður könnunarinnar um hvert við Sigurjón eigum að fara í framhaldsnám liggja fyrir.

  Svíþjóð       21,1%     :)
  Danmörk     26,3%    :d
  Noregur      47,4%     :haha:
  Þýskaland   5,3%      :$



» 12 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 23:50:40 / aso1

ÁFRAM ÍSLAND

.. senn líður að deginum mikla...morgundeginum! Það er dagurinn sem Íslendingar keppa í undanúrslitum á ÓL...

Ég var að koma úr dinnerhittings með nokkrum verkfræðivinkonum mínum á Ítalíu. Það var mjög gott bara. Ítölsk matarstemmning.

Í gær fékk ég morgunmat í rúmið :d Sigurjón færði mér Kelloggs special K þegar hann var að horfa á leikinn og ég gat ekki vaknað. Rómó ;)

Annars er bara ágætt að frétta af okkur. Ég er bara alltaf að vinna og þess á milli er ég að skoða framhaldsnám erlendis... verð bara spenntari og spenntari fyrir að flytja út og breyta til..... það gerist haustið 2009 (en ég hef einmitt heyrt að það sé einmitt árið sem fólki er ráðlagt að flytja :lol:)




» 7 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 22:05:06 / aso1

Sumarfrí búið...hverstagsleikinn tekinn við!

Þá er þriggja vikna sumarfríinu mínu lokið. Það var æðislegt. Ég náði sko að slappa af. Það sem við gerðum í sumarfríinu var m.a.:

  • 5 daga útilega með Evu Guðrúnu og Signýju í tjaldvagninum frá mömmu og pabba. Útilegan endaði á Akureyri.
  • Veiði í Hítarvatni
  • Veiði í sveitinni hans Sigurjóns, Sauðá.
  • Sumarbústaða-afslöppun í nokkra daga í Grímsnesinu með mömmu og Signýju
  • Afslöppun heima
  • Nokkrar ferðir á kaffihús í miðbænum
  • Surender-date ;)
  • Kíktum við á unglingalandsmóti í Þorlákshöfn þar sem Signý og Einar voru að keppa um verslunarmannahelgina.
  • Kíktum í útilegu með fjölskyldunni hans Sigurjóns á Hellishólum.
  • Sumarfríið endaði síðan á ættarmóti á Skálpastöðum hjá ættinni hennar mömmu

...Takk allir sem gerðu sumarfríið mitt svona frábært! Ég hlakka ekkert smá til að fá sumarfrí að ári ;)

Kram
Ásdís




» 4 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 11:49:27 / aso1

sUmArFrÍ !!!

Gleðilegt sumarfrí!

Sæl öll. Nú er ég byrjuð í langþráða sumarfríinu mínu. Það stendur yfir í 3 vikur og hófst síðastliðinn föstudag :) Við Sigurjón höfum ekkert planað í sumarfríinu annað en að slappa af. Það hefur heldur betur gengið ljómandi hingað til.

Á laugardaginn fórum við í sumarbústaðinn hjá ömmu og afa í Vaðnesinu (í Grímsnesi). Þar snæddum við góðan kvöldmat í boði ömmu, ásamt ömmu, afa, Georg frænda, Einari L, Guðrúnu Ástu, Signýju, mömmu og pabba. Það var ansi ljúft. Við fjölskyldan fengum svo að gista (ég, Sigurjón, Einar, Signý, mamma og pabbi).

Á sunnudaginn skiptum við okkur niður og þeir sem vildu fara í golf fóru í golf en aðrir fóru að veiða. Veiðimennirnir voru að sjálfsögðu hann Sigurjón veiðigúrú og við Signý fylgdum með. Við fórum í Úlfljótsvatn i ágætis veðri. Flugurnar voru mikið að angra okkur systurnar og fórum við því alla leiðina á Selfoss í leit að flugnanetum. Ekkert veiddist í Úlfljótsvatni og heldur var dautt yfir. Því héldum við í Þingvallavatn og ákváðum að reyna fyrir okkur þar. Þar byrjaði að rigna og veiðimenn urðu heldur litlir í sér. Loksins veiddist þó einn (mjög lítill) fiskur og gátum við haldið heim á leið. Þetta var hin besta skemmtun.

Við Sigurjón, mamma og Signý gistum svo í sumarbústaðnum fram á þriðjudag og höfðum það heldur betur gott. Fórum í göngutúr á gamlar slóðir á Selfossi, spiluðum, lásum, horfðum á sjónvarp, fórum í pottinn. Svona á sko að byrja sumarfríið. Algjör afslöppun í faðmi fjölskyldunnar.

Gærdagurinn, þriðjudagur, fór að mestu í að heimsækja ættingja á Selfossi. Þar fórum við í heimsókn til ömmu og afa hans Sigurjóns og fengum miklar krásir hjá henni Gullu og hittum fleiri ættingja hans þar. Dagurinn í gær endaði mjög vel því undir kvöldið fréttum við að frændi hans Sigurjóns, hann Torfi og konan hans hún Svava, hefðu eignast litla stelpu. Til hamingju með það.


Jæja best að halda áfram í sumarfríi ;) Veðurspáin er ekkert að sýna sínar bestu hliðar en okkur er alveg sama. Næst á dagskrá er að fara í útilegu með Helenu og Sigfúsi, sem eru líka í sumafrí. Því miður er Sigfús aðeins veikur og vonum við að honum batni fljótt svo við getum farið í ferðalagið okkar.

Hér koma nokkrar svipmyndir úr sumarfríinu:


Signýju var illa við flugurnar í veiðiferðinni


Sigurjón á pallinum


Yfir
Ásdís



» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 18:56:16 / aso1

Sumar, vinna vinna, ungbörn og fleira...

Jæja nú ætla ég að blogga smá

Í gær fórum við Sigurjón að skoða litlu frænku mína Salvarar-og Árnadóttur sem fæddist 15. júní. Hún er æðisleg. Ég var alveg búin að gleyma hvað nýfædd börn eru brothætt og lítil. Ég fékk mikið að halda á henni og hún var svo vær og góð. Lét ekkert  í sér heyra, lá bara stillt og prúð í fanginu á manni og leyfði manni að dáðst að sér. Ég óska Salvöru og Árna innilega til hamingju með litlu prinsessuna og hlakka ekkert smá til að koma aftur að hitta hana.

Síðustu helgi var ég í smá auka fríi á mánudag og einnig á þriðjudag sem var 17. júní. Við Sigurjón fórum pínu að veiða í Úlfljótsvatni en veiddum ekki neitt. Síðan skelltum við okkur í smá útilegu aðfaranótt 17. juní. Þá fórum við í Húsafell í sól og rok. Það var ósköp notalegt að vera bara svona tvö í smá ferðalag, grilla pylsur og spila YATSIE. Við erum sko til í fleiri útilegur ef einhver er æstur að koma með okkur ;)

Sigurjón er sofandi og ég þarf bráðum að vekja hann enda þurfum við að fara að koma okkur í að finna okkur eitthvað að borða.



Ég í útilegu-peysuteppinu sem ég prjónaði mér
 

...og Sigurón veiðimaður með gleraugun sem gera mann eins og flugu (sem hann hefur nú gefið mér 8|)


Endilega kommentið nú öll sem eitt!

Kveðja
Ásdís Ökumaður

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 23:59:01 / aso1

Prjóni prjóni prjóni prjón

Prjóna Ásdís er mætt!

Ég var að enda við að klára að prjóna peysu handa henni Signýju systur minni, og nú er hún í þvottavélinni að þerrast. Ég held ég hafi aldrei verið svona fljót að prjóna eina peysu, var ca 2 vikur með hana. Alls hef ég prjónað 5 lopapeysur um ævina og tóku þær allar nokkra mánuði í framleiðslu. Þetta er önnur peysan sem ég hef prjónað á hana Signýju, enda er hún minnst af okkur systkinunum og því tilvalið fórnarlamb... auðveldara að prjóna minni peysur. Aldrei að vita nema ég færi mig upp á skaptið og prjóni peysur handa aðilum sem eru í öðrum stærðum en X-small ;)

Aðrar og almennari fréttir:

Signý var í "pössun" hjá okkur Sigurjóni um helgina. Á laugardaginn fór ég aðeins að vinna um morguninn og skrapp svo í bakaríið. Þegar ég kom heim voru báðar svefnpurrkurnar, Sigurjón og Signý, steinrotuð. Ég undirbjó því morgunmat fyrir þau. Síðan sátum við Signý lengi frameftir og prjónuðum, ég peysuna á hana og hún prjónaði sér húfu í stíl. Erla, Hafsteinn og Stella kíktu í stutta heimsókn, en við Signý máttum varla vera að því að taka á móti gestunum, slíkur var prjónahasarinn. Ónefndur gestur sofnaði meira að segja í heimsókninni ;) Við Signý skruppum svo aðeins í smá búðaráp. Versluðum grillmat, tókum spólu og keyptum ýmislegt nauðsynlegt fyrir kósíkvöld.
    Þegar heim var komið setti Sigurjón grillkartöflurnar í ofninn og bjó sig til að grilla. Þá var að sjálfsögðu allt gas búið. Þá grilluðum við bara steikurnar í Georgi Formanni :) heldur sumarlegt grill þar.

Næstu helgi verð ég svo í fríi laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag :) og aldrei er að vita nema við Sigurjón kíkjum eitthvað í tjaldið okkar :O.....FRÍ FRÍ FRÍ!!!

Sumarkveðja
Ásdís


» 13 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 21:14:55 / aso1

Hver dagurinn á fætur öðrum

Daginn góðir landsmenn (eða bara þið sem lesið þetta blogg ;))

Nú er ég amk. hálfnuð til Akureyrar í hjólreiðaátakinu mínu, eða 185 km. Ég skal segja ykkur það! Ég er ekkert smá ánægð með mig. Það versta við þetta er að svitna tvisvar á dag.. en árangurinn finn ég þó hann sjáist kannski ekki.

Eins og flestir vita lék allt á reiðiskjálfi á Selfossi í gær og fundum við skjálftann vel á fimmtu hæð í vinnunni minni í Fellsmúlanum. Við Sigurjón skoðuðum aðstæður í gær og þar var margt brotinna hluta. Reyndar fannst okkur þetta alls ekki eins slæmt og við höfðum haldið áður en við lögðum af stað, en öll húsin sem við skoðuðum eru heil þó margir hlutir séu brotnir. Sem betur fór meiddist enginn. En hlutir eru bara hlutir og á því áttuðum við Sigurjón okkur þegar Sigurjón veiktist. Þá og nú vildi ég sko gefa allt sem brotnað gæti á heimilinu í staðin fyrir mannskjálftana okkar sem koma reglulega. En vonandi fara allir skjálftar í kringum okkur, af öllum toga, að hætta! Þetta er orðið ágætt!

Anyways... ætli lífið sé ekki bara samsett úr mörgum skjálftum, misstórum. Efiðast er bara að sætta sig við það sem maður fær ekki breytt.

Föstudags-Ásdís ...
PS. no more drama!!!

Endilega kommentið fyrir mig :D





» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Könnun
Hvert eigum við Sykurgrjón að fara í framhaldsnám
SVÍÞJÓÐ
7 atkvæði

DANMÖRK
5 atkvæði

NOREGUR
12 atkvæði

ÞÝSKALAND
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 25
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 27881
tenglar